Hver er ég?

Ég heiti Arna Vilhjálms og er með gráðu í ensku og sagnfræði. Ég hef starfað sem þjálfari síðan árið 2020. Ég vann sem þjálfari í fullu starfi frá ársbyrjun 2021 til og með maí 2022 í Kvennastyrk í Hafnarfirði. Þar kom ég að þjálfun ríflega 200 kvenna á þeim tíma sem komu á námskeið til mín. Ég er algjör íþróttagarpur og æfði fótbolta, blak, sund og skíði þegar ég var yngri. Ég var krakki með ógreint ADHD og hef í kjölfarið strögglað með þyngd og mat alla mína tíð.

Mitt ferðalag

Ég hef í gegnum árin áfellst sjálfa mig og leyfði þyngdinni að stjórna lífi mínu hér áður fyrr. Það var ekki fyrr en ég fór í Biggest Loser sem ég áttaði mig loksins á því að ég er miklu meira en þyngdin mín. Þegar ég fór að þjálfa fyrir alvöru sá ég ENGAN þjálfara eins og mig. Ég hugsaði; okay, ætlar þú að láta það stoppa þig við að taka þessu frábæra tækifæri? Ég áttaði mig á því að ég gæti orðið fyrirmynd fyrir konur eins og mig, ef ég er að hreyfa mig og kenni öðrum það, þá gætu þær það líka. Ég vildi hafa einhvern eins og mig þegar mér leið sem verst og því ætlaði ég að vera sú manneskja fyrir aðra.

Menntun

Ég er þjálfari frá ISSA, ketilbjölluþjálfari og hóptímakennari og langar mikið að bæta við mig næringarþjálfun eingöngu til að læra meira inn á líkamann. Ég hef mikla ástríðu fyrir því að allir hreyfi sig, finni gleðina í því sem hreyfing er og þá sérstaklega konur sem hafa verið í minni stöðu og vita ekkert hvar þær eiga að byrja.