Skilmálar

Tengiliðaupplýsingar:

  • Sími: +354 892 4442
  • Netfang: [email protected]
  • Heimilisfang: 450 Patreksfjörður, Vestfirðir

Eftirfarandi skilmálar gilda um heimsóknir á vefsíðuna stoltsport.is og öll viðskipti sem þar eiga sér stað, nú sem síðar.

1. Pöntun og verðbreytingar

Stoltsport áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga, og að breyta verðskrá eða hætta sölu vörutegunda án fyrirvara.

2. Höfundaréttur og eignarréttur

Allt efni á vefsíðu Stoltsport, þar á meðal efni netnámskeiða, er eign seljanda. Kaupanda er með öllu óheimilt að afrita, dreifa eða deila efninu með þriðja aðila.

3. Einstaklingsaðgangur

Aðgangur að þjónustu og vörum er eingöngu ætlaður þeim einstaklingi sem greiðir fyrir hann. Óheimilt er að deila aðgangsupplýsingum eða áskrift með öðrum.

4. Áskriftir og greiðsluskylda

Við skráningu í mánaðarlega áskrift skuldbindur kaupandi sig til reglulegra greiðslna á 30 daga fresti. Áskrift endurnýjast sjálfkrafa og er rukkun send þar til kaupandi segir henni upp með formlegum hætti á meðlimasvæði sínu.

5. Stök námskeið og vörur

Stök námskeið eða aðrar vörur eru greiddar fyrirfram. Þar sem um stafræna þjónustu er að ræða er endurgreiðsla ekki möguleg eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.

6. Endurgreiðsluréttur

Almennt er ekki boðið upp á endurgreiðslu á áskriftargjöldum eða námskeiðsgjöldum, þar sem greitt er fyrirfram fyrir aðgang að verðmætum. Réttur til endurgreiðslu myndast ekki þótt kaupandi nýti sér ekki keypta þjónustu eða vöru á tímabilinu.

7. Uppsögn á áskrift

Uppsögn fer fram í gegnum meðlimasvæði á stoltsport.is. Uppsögn tekur gildi þegar í stað; kaupandi verður ekki rukkaður aftur en missir jafnframt aðgang að viðkomandi þjónustu eða vöru um leið og uppsögn er staðfest.

8. Verðskrá

Öll verð eru birt með fyrirvara um breytingar. Ef til hækkunar á áskriftargjaldi kemur, mun Stoltsport tilkynna það með fyrirvara og tekur nýtt verð gildi við næstu mánaðarmót eftir tilkynningu.

9. Eigin ábyrgð iðkanda

Kaupandi ber fulla ábyrgð á framkvæmd æfinga og árangri sínum. Stoltsport hvetur alla iðkendur til að hlusta á líkama sinn og meta eigið heilsufar og getu áður en æfingar eru hafnar. Ef um meiðsli eða veikindi er að ræða er eindregið mælt með samráði við lækni eða sjúkraþjálfara. Með kaupum staðfestir kaupandi að öll notkun þjónustunnar sé á hans eigin ábyrgð.

10. Trúnaður og persónuvernd

Seljandi ábyrgist fullan trúnað gagnvart kaupanda varðandi allar upplýsingar sem gefnar eru upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila.

11. Varnarþing

Skilmála þessa skal túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi ágreiningur vegna viðskipta eða skilmála Stoltsport, skal honum vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

12. Breytingar á skilmálum

Stoltsport áskilur sér rétt til að uppfæra og breyta skilmálum þessum. Breytingar taka gildi þegar þær hafa verið birtar á vefsíðunni.